Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Fréttir
Velkomin úr sumarfríi Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Fréttir frá Jötunheimum
mánudagur, 16 ágúst 2010 14:34

Kæru forledrar og börn!

Velkomin úr sumarfríi og gaman að  fá ykkur aftur til baka.  Nú eru flest skólabörnin hætt en við njótum þess að hafa nokkur  ennþá.  Börnin sem koma til okkar af Álfheimum voru flest að flytja í dag yfir á Jötunheima og bjóðum við þau velkomin.

Mjög spennandi af fá til okkar fleiri börn.  Tveir drengir af öðrum leikskólum eru einnig að byrja og bjóðum við þá að sjálfsögðu velkomna.

Í lok vikunnar kveðjum við grunnskólabörnin okkar og vonum að þeim gangi allt í hagin.

Hauststarfið fer fljótlega í gang og hlakkar okkur bara til.

Heyrumst og sjáumst kveðja frá okkur jötnum.

 
Aðlögun Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
mánudagur, 16 ágúst 2010 14:30

Nú er sumarleyfinu lokið hjá okkur og kennarar og börn að skila sér í hús. Einhver af þeim börnum sem eru að fara í grunnskóla eru hætt en önnur komu tl okkar aftur og ætla að vera hjá okkur fram að skólabyrjun. Við erum byrjuð að flytja börn á milli deilda og taka á móti nýjum börnum. Við verðum í aðlögun eitthvað fram í september.

Samkvæmt skóladagatali er hálfur starfsdagur hjá okkur þann 13. september n.k. Þann dag er leikskólinn lokaður til kl. 12:30

 
Sumarfrí Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
mánudagur, 05 júlí 2010 14:06

Leikskólinn verður lokaður vegna sumarleyfa frá 12. júlí - 6.ágúst. Hafið það gott í fríinu og við hlökkum til að sjá ykkur aftur í ágúst.

 

 
sumar og sól Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Fréttir frá Jötunheimum
föstudagur, 25 júní 2010 13:16

Kæru foreldrar!

Nú styttist óðum í sumarfríslokun.  Allir farnir að hlakka til börn og fullorðnir.

Þessi vika er búið að vera mjög viðburðarík, við bökuðum köku og kvöddum elstu börnin.  Fórum í mjög skemmtilega ferð i Elliðaárdalinn það sem við vorum að vaða í Indíánagili, grilluðum pylsur og börnin léku sér í skóginum í hólmanum.

Í gær var hinn langþráði hjóladagur og tókst hann mjög vel.  Enduðum svo vikuna með því að sjá brúðubílinn.

Í dag kvöddum við fyrsta skólabarnið okkar en Ingunn er að hætta í dag.  Við óskum henni góðs gengis  og takk fyrir samveruna.

Svo eru fyrstu börnin að fara í frí og stutt í að allir hinir fari líka.  Hafið það mjög gott í fríinu ykkar kæru börn og foreldrar.

Kveðja Ingibjörg, Elva, María og Anna Kristín.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 9

Viðburðir

06.09.'10 til 10.09.'10
Taka upp úr matjurtargörðum

13.09.'10 til 13.09.'10
Starfsdagur til 12:30

23.09.'10 til 23.09.'10
Tónlistardagur

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

Ávaxtastund er á hverjum degi

 
Leikskólinn Brákarborg | v/Brákarsund | 104 Reykjavík | s: 553 4748 | Póstur | Viðburðir | Fréttir