Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Velkomin í leikskólann Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Aðlögun: Mikilvægt er að aðlögun gangi sem best fyrir sig og að foreldrar taki sér þann tíma sem börnin þeirra þurfa í aðlögun. Hér fyrir neðan er aðlögunarplan í pdf skjali fyrir ný börn í Brákarborg.
 Aðlögunarplan

Að koma og fara: Við leggjum mikla áherslu á að taka vel á móti barninu og kveðja það vel og láta það finna að það sé velkomið. Mjög mikilvægt er að foreldrar fylgi barninu inn til starfsmanna. Það er gott að gefa barninu tíma til að ljúka við vinnu sína og kveðja starfsfólkið í lok dagsins.

Vistunartími: Við upphaf leikskóladvalar er gerður skriflegur samningur við foreldra um vistunartíma barnanna. Við biðjum foreldra að virða þennan samning, því fjöldi starfsmanna fer eftir viðveru barnanna á hverjum tíma. Ef þörf verður á að endurskoða þennan samning þá vinsamlega hafið samband við leikskólastjóra. Uppsögn á dvalarsamningi eða breytingar þurfa að gerast með mánaðar fyrirvara og miðast við fyrsta hvers mánaðar. Gagnkvæmur uppsagnarfrestur er einn mánuður og miðast við mánaðarmót. Heimilt er að krefjast eins mánaðar greiðslu hafi reglu um uppsagnarfrest ekki verið fylgt.

Barngildi: Fjöldi starfsmanna fer eftir fjölda og aldri barna. Á bak við hvern leikskólakennara eru 8 barngildi. Börnin vega mismikið og fer það eftir aldri þeirra. Þannig er starfsmannafjöldi skólans fundinn út og getur hann verið rokkandi frá ári til árs vegna aldurssamsetningar barnanna.

 Aldur barns Barngildi             
 5 ára  0,8 10 börn   =  8 barngildi   = 1 leikskólakennari 
 4 ára  1,0  8 börn   = 8 barngildi   = 1 leikskólakennari  
 3 ára  1,3  6 börn   = 8 barngildi  = 1 leikskólakennari  
 2 ára  1,6  5 börn   = 8 barngildi  = 1 leikskólakennari  
 1 ára  2,0  4 börn   = 8 barngildi  = 1 leikskólakennari  


Fatnaður: Leikskólinn er vinnustaður barnanna. þess vegna er mikilvægt að þau séu í ''vinnufötum'', þ.e.a.s. fötum sem þola bletti eftir málningu eða útivinnu. Mikilvægt er að fötin séu þægileg og hefti ekki hreyfingar barnanna. Nauðsynlegt er að barnið hafi með sér aukaföt. Foreldrar koma með þann búnað sem barnið þarfnast í leikskólanum, leikskólinn er ekki með aukaföt á börnin. Vinsamlega merkið föt barnanna vel og skilmerkilega, þá eru minni líkur á að fötin glatist.
Gott að hafa í körfunni hjá barninu:
2 nærbuxur
2 sokka
2 sokkabuxur
1 bolur
1 peysa
1 buxur
2 ullarsokkar
2 vettlingar
hlý peysa
Á veturna þarf alltaf að vera nóg af útifötum sem henta íslenskri veðráttu:
Pollagalli
Kuldagalli
Úlpa
Húfa
Stígvél
Kuldaskór

 

Viðburðir

06.09.'10 til 10.09.'10
Taka upp úr matjurtargörðum

13.09.'10 til 13.09.'10
Starfsdagur til 12:30

23.09.'10 til 23.09.'10
Tónlistardagur

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

Ávaxtastund er á hverjum degi

 
Leikskólinn Brákarborg | v/Brákarsund | 104 Reykjavík | s: 553 4748 | Póstur | Viðburðir | Fréttir