| sumar og sól |
|
|
|
| föstudagur, 25 júní 2010 13:16 | |||
|
Kæru foreldrar! Nú styttist óðum í sumarfríslokun. Allir farnir að hlakka til börn og fullorðnir. Þessi vika er búið að vera mjög viðburðarík, við bökuðum köku og kvöddum elstu börnin. Fórum í mjög skemmtilega ferð i Elliðaárdalinn það sem við vorum að vaða í Indíánagili, grilluðum pylsur og börnin léku sér í skóginum í hólmanum. Í gær var hinn langþráði hjóladagur og tókst hann mjög vel. Enduðum svo vikuna með því að sjá brúðubílinn. Í dag kvöddum við fyrsta skólabarnið okkar en Ingunn er að hætta í dag. Við óskum henni góðs gengis og takk fyrir samveruna. Svo eru fyrstu börnin að fara í frí og stutt í að allir hinir fari líka. Hafið það mjög gott í fríinu ykkar kæru börn og foreldrar. Kveðja Ingibjörg, Elva, María og Anna Kristín.
|
| 06.09.'10 til 10.09.'10 Taka upp úr matjurtargörðum |
| 13.09.'10 til 13.09.'10 Starfsdagur til 12:30 |
| 23.09.'10 til 23.09.'10 Tónlistardagur |