Bugða - leikskólar sem læra með börnum

Bugða er samstarfsverkefni fjögurra leikskóla í Reykjavík með
sameiginleg markmið í uppeldisstarfi og starfsmannastefnu. Þetta eru
leikskólarnir Brákarborg, Garðaborg, Klambrar og Rauðhóll. Formlegt
samstarf skólanna hófst 19. október 2007 með sameiginlegum
fræðsludegi.
Faglegt samstarf skólanna byggir á því að leikskólinn er lærdómssamfélag
þar sem börn og fullorðnir geta lært og þroskast saman.
Bugðu-leikskólarnir sækja uppeldiskenningar sínar til bandaríska
heimspekingsins og menntafrömuðarins John Dewey um lýðræði í
leikskólastarfi, menntun sem byggir á reynslu og mikilvægi þess að þroska
skapandi og gagnrýna hugsun. Starfsaðferðir byggja á kenningum bandaríska
uppeldisfræðingsins Caroline Pratt sem vildi að skólinn aðlagaði sig að
nemendum en ekki nemendur að skólanum. Einingakubbarnir, sem eru eitt
helsta náms- og kennsluefni Bugðu-leikskólanna, eru niðurstaða tilrauna
Pratt til þess að finna “eitthvað svo sveigjanlegt, að börnin gætu notað
það án leiðbeiningar og stjórnunar.”
Bæklingur Bugðu
Skýrsla úr náms- og kynnisferð til New York 2008
Skýrsla vegna þróunarverkefnis unnin af RannUng vorið 2010
|