|
Aðlögun á milli deilda í leikskólanum er unnin í samvinnu milli deilda í samráði við foreldra. Reynt er að hafa nokkur börn saman í aðlögun í einu.
|
|
|
Foreldrar þurfa að gefa upp hver má sækja barn þeirra í leikskólann. Ef breytingar eru þar á þarf að tilkynna leikskólanum það sérstaklega. Leikskólinn miðar við það að börn séu orðin 12 ára til að sækja börn í leikskólann.
|
|
Allir starfsmenn leikskólans eru bundnir þagnarskyldu varðandi vinnu sína í leikskólanum. Á þagnarskyldan við um málefni barna, foreldra eða annarra starfsmanna leikskólans.
|
|
Börnin halda upp á afmælið sitt í leikskólanum. Þau mega koma með ávexti og/eða ís en við biðjum ykkur um að koma ekki með sælgæti eða kökur.
|
|
Foreldrum leikskólabarna ber að taka sumarfrí í 4 vikur fyrir börn sín og eru leikskólagjöld því greidd í 11 mánuði á ári. Júlí er gjaldfrjáls mánuður og skiptir þá engu máli hvort frí sé tekið í júní eða ágúst.
Um börn sem flytjast frá dagforeldri/einkareknum leikskóla yfir til leikskóla eftir 1. maí gilda sömu reglur – þeim ber að taka fjögurra vikna samfellt sumarfrí. Börn sem byrja í leikskóla eftir 1. maí og hafa ekki verið í vistun annars staðar hafa val um hvort þau taki sumarfrí. Börn sem byrja fyrir 1. maí taka 4 vikur í sumarfrí. |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 3 |