|
Almennar fréttir
|
|
fimmtudagur, 04 mars 2010 13:59 |
|

Á morgun föstudag er fjölmenningardagur, í tilefni af því ætlum við að kynnast aðeins betur þeim þjóðernum sem við höfum í leikskólanum. Hlustum á tónlist skoðum fána landanna og fleira skemmtilegt. Í leikskólanum höfum við starfsfólk frá Íslandi, Danmörku og Póllandi. Börn frá Singapore, Frakklandi, Póllandi, Englandi, Spáni og Íslandi þannig að það er spennandi dagur framundan.
Ef þið eigið tónlist frá einhverjum þessara landa
þá væri gaman að fá hana lánaðan þennan dag. |
|
|
Almennar fréttir
|
|
miðvikudagur, 17 febrúar 2010 13:47 |
|

Myndir komnar inn frá Öskudeginum
á myndasíðuna!!!
|
|
Almennar fréttir
|
|
miðvikudagur, 17 febrúar 2010 13:09 |
|

Dagana 16. – 22. febrúar mun skátahreyfingin standa fyrir
Góðverkadögum um land allt, undir yfirskriftinni „Góðverk dagsins“.
En þetta er ný útfærsla á nær aldagamalli hefð og
loforði skáta um að gera að minnsta kosti eitt góðverk á dag.
Hugmyndin er að árlega verði haldnir sérstakir Góðverkadagar með virkri þátttöku allra landsmanna. Í ár hefur því verið leitað eftir samvinnu við eftirfarandi aðila:
· Stöð2 – mun kynna Góðverkadagana í opinni dagskrá dagana 16. – 22. febrúar og hvetja almenning til þátttöku.
· Dagblöð – verið er að undirbúa umfjöllun bæði á visir.is og hjá Fréttablaðinu.
· Fjölmenn fyrirtæki – fengu boð um þátttöku og þau hvött til að bjóða upp á góðverkaþemu og beðin að hvetja starfsfólk sitt til þátttöku m.a. með því að gera að minnsta kosti eitt góðverk á dag alla Góðverkadagana. Þegar hafa 14 fyrirtæki staðfest þátttöku. Þau fyrirtæki sem ekki hafa fengið sérstakt boð eru auðvitað líka velkomið að vera með.
· Skátafélög landsins – munu fest vera með fjölbreytta góðverkadagskrá í félagsstarfi sínu þessa daga.
· Framhaldsskólar – nokkrir framhaldsskólar víðsvegar um land munu vera með dagskrá tengda Góðverkadögunum, ýmist á vegum nemendafélaga eða annarra hópa.
· Leikskóla – nokkrir leikskólar eða leikskóladeildir víðsvegar um land munu hafa dagskrá tengda Góðverkadögunum.
· Grunnskólar landsins – hafa fengið boð um að vera með. Sumir hafa þegar látið vita af sér.
Heimasíða Góðverkadagsins (www.godverkin.is) verður opnuð á allra næstu dögum. Og rétt er að geta þess að síðan Góðverk gleðja á Facebook hefur fengið margar heimsóknir.
Á þessu má sjá að undirbúningur gengur vel og spennandi verður að fylgjast með framvindu mála næstu daga.
Börnin á Jötunheimum koma til með að taka þátt í Góðverkavikunni!
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 6 af 13 |